Loading

IKEA HILLA TEKIN Á NÆSTA STIG

Það eiga flestir (ef ekki allir) Íslendingar eintak af hinni víðfrægu Malm kommóðu frá Ikea. Þó að þú sért (mögulega) komin með leið á þinni er algjör óþarfi að skipta henni út. Hér er búið að umbreyta henni og lausnin er ekki af verri endanum.

Ekki þarf neitt brjálæðislega flókið við þetta… það sem þarf er að láta framköllunarþjónustu prenta út ljósmynd í þeirri stærð sem þú vilt (sem að passar á kommóðuna) og svo er ekkert annað að gera en að klippa myndina þannig að hún passi framan á skúffurnar og líma hana á.

Mun ítarlegri leiðbeiningar er hægt að nálgast HÉR.

X