Loading

ÞETTA ERU MYNDIRNAR SEM VAR HAFNAÐ

Forsíða Time tímaritisins hefur vakið gríðarlega sterk viðbrögð um heim allan og sitt sýnist hverjum. Sumir fagna því að brjóstagjöf sé gerð sýnilegri á meðan aðrir eru yfir sig hneykslaðir á aldri barnsins á myndinni.

Konan á forsíðunni, Jamie Lynn Grument, er dyggur fylgismaður hins svokallaða Attachment parenting, sem gæti útlagst á íslensku sem Nándar uppeldi eða eitthvað í þá veruna. Í stuttu máli gengur Attachment parenting út á þrennt: ganga með barnið á sér í poka, hafa það á brjósti og sofa með það upp í.

Forsíðan er eins og áður segir mjög áhrifamikil en margir hafa þó mótmælt því að þarna sé brjóstagjöfinni stillt upp á kynþokkafullan hátt og að Jamie hafi verið valin þar sem hún sé mesta kyntáknið af þeim konum sem komu til greina. Eins sé ekki um hefðbundna gjafastellingu að ræða sem sé einnig ögrandi.

En hér gefur að líta hinar myndirnar sem komu til greina á forsíðuna. Endilega deilið ykkar skoðun á málinu… ég veit við höfum öll skoðun á þessu máli.





X